Spilliefnagjald

Mánudaginn 20. maí 1996, kl. 17:54:14 (6287)

1996-05-20 17:54:14# 120. lþ. 142.4 fundur 252. mál: #A spilliefnagjald# frv. 56/1996, Frsm. ÓÖH
[prenta uppsett í dálka] 142. fundur

[17:54]

Frsm. umhvn. (Ólafur Örn Haraldsson):

Virðulegi forseti. Vegna þeirra breytingartillagna sem fluttar eru af nefndarmönnum í umhvn. vil ég láta koma fram að þau sjónarmið sem hér eru gerð að umtalsefni eru tekin til umfjöllunar og afgreiðslu með þeirri brtt. sem ég gerði grein fyrir í framsögu minni. Aðilar atvinnulífsins, neytenda og almennings eru býsna margir og með því ákvæði sem sett hefur verið fram um að ráðherra gæti þeirra hagsmuna, sem eru vissulega margra aðila, teljum við að þeim tilgangi sem stefnt er að sé náð.

Mál þetta var rætt í nefndinni og meiri hluti nefndarinnar komst að þeirri niðurstöðu sem skýrir sig og lýsir sér best í þeirri brtt. sem ég flutti áður.