Spilliefnagjald

Mánudaginn 20. maí 1996, kl. 18:13:20 (6294)

1996-05-20 18:13:20# 120. lþ. 142.4 fundur 252. mál: #A spilliefnagjald# frv. 56/1996, umhvrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 142. fundur

[18:13]

Umhverfisráðherra (Guðmundur Bjarnason) (andsvar):

Hæstv. forseti. Aðeins ein setning. Þegar lesin verður eða yfirfarin ræða sú eða það svar við andsvari sem ég veitti áðan, þá held ég að setningin hafi hljóðað svo að það hafi náðst fullkomin samstaða eða sátt milli stjórnarliðanna um þær breytingartillögur sem hér liggja fyrir. Ég vona að það sé alveg skýrt og ljóst hvernig setningin hljóðaði og um hvað hún snerist. Þær breytingartillögur sem hér liggja fyrir eru samþykktar af stjórnarliðinu í það minnsta og ég vona að þær eigi stuðning reyndar fleiri, helst allra hv. þingmanna.