Frsm. minni hluta félmn. (Kristín Ástgeirsdóttir) (andsvar):
Hæstv. forseti. Það sem hv. þm. Ögmundur Jónasson sagði um þróun vinnumarkaðar á næstu árum vakti athygli mína. Mig langar til þess að biðja hann að skýra það nánar. Þá á ég við það sem hann sagði um það að hann teldi að þróun á vinnumarkaði yrði í þá átt að samræma réttindi fólks og það upp á við. Nú kemur þetta ekki heim og saman við þá umræðu sem á sér stað úti í Evrópu um þróun vinnumarkaðar þar sem menn telja að sundurleitni, ef ég má kalla það svo, verði æ algengari og að sú mikla opnun sem þar hefur átt sér stað á vinnumarkaði, alþjóðlegur vinnumarkaður, aukin samkeppni o.fl. verði einmitt til þess að auka launamun, ýta fólki út úr stéttarfélögum og ýta undir einstaklingsbundna samninga o.s.frv. Mig langar því til að biðja hv. þm. að skýra það hvort hann er hér að tala um það sem hann vonast til að sjá eða hvort hann hefur eitthvað fyrir sér varðandi það að þróunin verði í þá átt að samræma og draga úr launamun og mismunandi réttindum. Hvað hafði hv. þm. fyrir sér þegar hann fullyrti þetta?