Stéttarfélög og vinnudeilur

Þriðjudaginn 21. maí 1996, kl. 17:26:40 (6383)

1996-05-21 17:26:40# 120. lþ. 143.8 fundur 415. mál: #A stéttarfélög og vinnudeilur# (sáttastörf, vinnustaðarfélög, vinnustöðvun o.fl.) frv. 75/1996, GÁ (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 143. fundur

[17:26]

Guðni Ágústsson (andsvar):

Hæstv. forseti. Hvað varðar trúnaðarmannaráðin, þá fór ég yfir málið. Ég hefði viljað sjá það borið vel saman hvernig það gengur fyrir sig eða hefur gengið fyrir sig. Önnur samtök búa við hitt kerfið. Hvor leiðin kallar á fleiri eða færri verkföll eða átök? Ég hef þess vegna verið fylgjandi trúnaðarmannaráðunum. En samvisku mína verð ég að eiga við sjálfan mig en ekki hv. þm. Svavar Gestsson.