Stéttarfélög og vinnudeilur

Þriðjudaginn 21. maí 1996, kl. 23:09:24 (6406)

1996-05-21 23:09:24# 120. lþ. 143.8 fundur 415. mál: #A stéttarfélög og vinnudeilur# (sáttastörf, vinnustaðarfélög, vinnustöðvun o.fl.) frv. 75/1996, félmrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 143. fundur

[23:09]

Félagsmálaráðherra (Páll Pétursson) (andsvar):

Herra forseti. Eins og ég hef margtekið fram og er afar auðvelt að sanna slitu hvorki félmrn. né ég þessum viðræðum. Það var ákvörðun formannafundar í Ölfusborgum sem haldinn var síðla í janúar á þessu ári. Ég væri ekki, herra forseti, að leggja til breytingar á þessum lögum ef ég teldi þær ekki til bóta.