Ásta B. Þorsteinsdóttir fyrir JBH

Miðvikudaginn 22. maí 1996, kl. 10:02:49 (6413)

1996-05-22 10:02:49# 120. lþ. 144.99 fundur 313#B Ásta B. Þorsteinsd. inn fyrir Jón Baldvin#, Forseti GÁ
[prenta uppsett í dálka] 144. fundur

[10:02]

Forseti (Guðni Ágústsson):

Svohljóðandi bréf hefur borist, dags. 22. maí 1996:

,,Þar sem ég er á förum til útlanda og get því ekki sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér með vísan til 2. mgr. 53. gr. laga um þingsköp Alþingis að óska þess að 1. varaþm. Alþfl. í Reykjavík, Ásta B. Þorsteinsdóttir hjúkrunarfræðingur, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.

Þetta er yður hér með tilkynnt, herra forseti.

Jón Baldvin Hannibalsson, 9. þm. Reykv.``

Ásta B. Þorsteinsdóttir hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðin velkomin til starfa.