Varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum

Miðvikudaginn 22. maí 1996, kl. 14:27:14 (6432)

1996-05-22 14:27:14# 120. lþ. 144.18 fundur 520. mál: #A varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum# (forvarnagjald, lántökur) frv. 62/1996, Frsm. ÓÖH (flutningsræða)
[prenta uppsett í dálka] 144. fundur

[14:27]

Frsm. umhvn. (Ólafur Örn Haraldsson):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti um frv. til laga um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum.

Umhvn. hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund allmarga gesti, en nefndinni barst þar að auki erindi frá Sambandi ísl. sveitarfelaga varðandi kostnaðarhlutdeild sveitarfélaga.

Í frv. er í fyrsta lagi lagt til að ofanflóðasjóði verði heimiluð lántaka, að upphæð 800 milljónir króna, til að standa straum af kostnaði við framkvæmdir sumarsins. Í öðru lagi er lagt til að ofanflóðasjóði verði skapaður sjálfstæður tekjustofn með álagningu sérstaks gjalds á brunatryggðar fasteignir í landinu. Þá gerir frumvarpið ráð fyrir því að nafni sjóðsins verði breytt í Forvarnasjóð og er stefnt að því að hann gegni víðtækara hlutverki í framtíðinni.

Umhverfisnefnd mælir með samþykki frumvarpsins með þeim breytingum sem lagðar eru til á sérstöku þingskjali. Fela þær í sér að horfið verði frá nafnbreytingu á ofanflóðasjóði en nefndin telur að breytingar á hlutverki og nafni sjóðsins eigi að bíða heildarendurskoðunar laganna sem nú er unnið að. Þó er nauðsynlegt að sjóðurinn hafi heimild til lántöku.

Nefndin vill benda á að við heildarendurskoðun laganna þarf að huga sérstaklega að kostnaðarhlutdeild sveitarfélaga í gerð og viðhaldi varnarvirkja en samkvæmt gildandi lögum eiga viðkomandi sveitarfélög að greiða a.m.k. 10% kostnaðar við gerð varnarvirkja og 40% kostnaðar við viðhald þeirra.

Þá leggur nefndin áherslu á að mótaðar verði hið fyrsta skýrar starfsreglur um framtíðarúthlutanir úr ofanflóðasjóði og þær felldar að áætluðum framkvæmdatíma til að ljúka gerð varnarvirkja og öðrum öryggisráðstöfunum.

Ásta R. Jóhannesdóttir sat fundi nefndarinnar sem áheyrnarfulltrúi og er samþykk því sem fram kemur í áliti þessu. Undir nál. rita allir nefndarmenn umhvn.