Össur Skarphéðinsson:
Herra forseti. Þetta frv. var hrákasmíð þegar það kom af hendi hæstv. félmrh. eins og sést best á því að það var rist sundur og saman af Lagastofnun Háskóla Íslands. En sameinuð verkalýðshreyfing og stjórnarandstaða hefur eigi að síður náð mikilvægum áföngum vegna þess að það er búið að brjóta verstu rántennurnar úr frv. Enn er það eigi að síður þannig úr garði gert að það er með engu móti hægt að samþykkja það vegna þess að það er íhlutun í innri mál verkalýðsfélaga.
Herra forseti. Ég mun þess vegna styðja það að málinu verði vísað til ríkisstjórnarinnar en einhvers staðar í breiðu brjósti hæstv. félmrh. blundar á sáttfýsi. Hann sagði undir lok umræðunnar að hann vildi ná sáttum, vildi samráð og fyrrv. forseti Alþýðusambands Íslands sagði á tröppum þessa húss að hann vildi reyna að ná sáttum yfir sumar. Þess vegna á að vísa þessu til ríkisstjórnarinnar og freista þess að ná samkomulagi í sumar. Ég segi já.