Rannveig Guðmundsdóttir:
Virðulegi forseti. Í þessu frv. eru gerðar kröfur um meðferð mála hjá stéttarfélögum sem fela í sér harkalega íhlutun í innri málefni þeirra og brýtur í bága við anda alþjóðasamþykkta um frelsi stéttarfélaga. Lögbundin eru ýmis mikilvæg atriði sem hafa áður verið afgreidd með beinum og frjálsum hætti af hálfu félaga í stéttarfélögum fyrir utan að takmarkað er með lögum hvaða málefni samninganefndir þurfa að leggja fyrir félagsmenn er fest í lög afgreiðsla kjarasamninga með lágmarksþátttökuákvæðum sem telja verður grófa íhlutun um málefni stéttarfélaga nema þar sem ákvæðin eru sett í fullri andstöðu við launþegasamtökin.
Virðulegi forseti. Því hefur verið haldið fram að með frv. þessu eigi að afstýra því að litlir hópar geti klifrað upp eftir bakinu á stórum hópum sem þegar hafi samið og náð sér í betri kjör og stærri hlut af kökunni sem á að skipta. Þessi málflutningur hefur náð til margra en ekkert slíkt ákvæði er að finna í þessum lögum. Við höfnum þessari íhlutun og höfum ekki afskipti af breytingartillögum. Ég greiði ekki atkvæði.