Stéttarfélög og vinnudeilur

Fimmtudaginn 23. maí 1996, kl. 11:32:34 (6508)

1996-05-23 11:32:34# 120. lþ. 146.1 fundur 415. mál: #A stéttarfélög og vinnudeilur# (sáttastörf, vinnustaðarfélög, vinnustöðvun o.fl.) frv. 75/1996, GÁS (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 146. fundur

[11:32]

Guðmundur Árni Stefánsson:

Virðulegi forseti. Þeir brosa breitt í Garðastrætinu þessar mínúturnar. Það eru meira að segja brosviprur í andliti stjórnarherranna en óbragð í munnum þeirra margra þrátt fyrir allt. Hér er um sannarlegan Pyrrhosarsigur að ræða og þessu stríði sem í hönd fer mun ríkisstjórnin svo sannarlega tapa. Þetta frv. vil ég norður og niður og alls ekki til 3. umr. og segi því nei.