Frestun þingfundar

Föstudaginn 24. maí 1996, kl. 10:48:06 (6535)

1996-05-24 10:48:06# 120. lþ. 148.92 fundur 317#B frestun þingfundar# (aths. um störf þingsins), SvG (flutningsræða)
[prenta uppsett í dálka] 148. fundur

[10:48]

Svavar Gestsson:

Herra forseti. Það vakti athygli mína áðan að fundi var frestað í 15 mínútur sem er út af fyrir sig ekki langur tími. En þegar forseti frestaði fundinum gat hann þess ekki hver hefði óskað eftir frestuninni. Ég mundi því vilja biðja forseta að svara því hver bað um frestunina á þessum fundi. Ég hygg að það hafi ekki verið stjórnarandstaðan eða hvað?