Átak í jafnréttismálum hjá Ríkisútvarpinu

Þriðjudaginn 28. maí 1996, kl. 15:44:24 (6641)

1996-05-28 15:44:24# 120. lþ. 149.11 fundur 531. mál: #A átak í jafnréttismálum hjá Ríkisútvarpinu# fsp. (til munnl.) frá menntmrh., KH
[prenta uppsett í dálka] 149. fundur

[15:44]

Kristín Halldórsdóttir:

Herra forseti. Ég þakka hv. fyrirspyrjanda fyrir fyrirspurnina. Mig langar aðeins til að benda á að á dagskrá eru 13 fyrirspurnir og kynjaskipting fyrirspyrjenda endurspeglar reyndar ekki kynjaskiptinguna á Alþingi þar sem konur á Alþingi skipa 25% þingsæta. Af þessum 13 fyrirspurnum eru 6 bornar fram af þingkonum og 7 af þingkörlum og verður fróðlegt að fylgjast með fréttaflutningi af þessum fundi.