Tekjustofnar sveitarfélaga

Þriðjudaginn 28. maí 1996, kl. 17:41:16 (6666)

1996-05-28 17:41:16# 120. lþ. 150.8 fundur 464. mál: #A tekjustofnar sveitarfélaga# (flutningur grunnskólans) frv. 79/1996, Frsm. KÁ (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 150. fundur

[17:41]

Frsm. félmn. (Kristín Ástgeirsdóttir) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég var að tíunda hvaða skilning við legðum í þessar breytingar sem hér væri verið að gera og var að vitna í orð fjmrh. varðandi þessa tilfærslu svo það væri algerlega á hreinu og staðfest í þingtíðindum að það er skilningur okkar og jafnframt skilningur fjmrh. að þessi breyting sem verið er að gera hér á skattprósentu þýði að á móti komi lækkun á tekjuskatti. Ég vil að það sé alveg ljóst að þetta er sá skilningur sem liggur að baki og í samræmi við þann samning sem gerður var.