Frsm. allshn. (Sólveig Pétursdóttir):
Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir nál. á þskj. 1067 um frv. til lögreglulaga fyrir hönd allshn. og jafnframt meðfylgjandi brtt. á þskj. 1068.
Nefndin hefur fjallað mjög ítarlega um þetta mál og fengið marga gesti á sinn fund. Enn fremur barst fjöldi umsagna inn í nefndina vegna þessa máls.
Lagafrv. þessu er ætlað að koma í stað laga um lögreglumenn og laga um Rannsóknarlögreglu ríkisins. Þar er lagt til að gerð verði sú grundvallarbreyting á skipulagi lögreglunnar og æðstu stjórn hennar að komið verði á fót embætti ríkislögreglustjóra er fari með yfirstjórn lögreglu í landinu. Með því að setja slíkt embætti á stofn er stigið skref í að styrkja stjórnsýslu lögreglunnar, auka samræmingu og eftirlit og efla fagleg vinnubrögð. Þá er í frv. gert ráð fyrir að færa rannsókn meginþorra brotamála til einstakra lögreglustjóra og tengja með því betur saman almenna löggæslu og rannsóknir.
Þá er með þessu frv. og frv. um breyting á lögum um meðferð opinberra mála, nr. 19/1991, sem lagt hefur verið fram á þingi samhliða, stefnt að því að ferill algengustu brotamála á rannsóknar- og ákærustigi verði gerður einfaldari með því að vinna við rannsókn máls frá upphafi og útgáfa ákæru og saksókn fari fram hjá sama embætti, en það ætti að spara vinnu og gera refsivörslukerfið í heild skilvirkara en áður.
Allshn. leggur til að frv. verði samþykkt með ákveðnum breytingum sem eru gerðar tillögur um á þskj. 1068, eins og ég skýrði frá. Ég vil gera nokkra grein fyrir helstu brtt. nefndarinnar en vísa að öðru leyti til þingskjala um nánari rök.
1. Við 6. gr. Sú gagnrýni hefur komið fram á frv., m.a. frá lögreglustjórum og lögreglumönnum, að í það vanti ákvæði um yfirstjórn lögreglu varðandi björgun og leitaraðgerðir. Ekki er umdeilt að eitt af verkefnum lögreglustjóra hefur verið að hafa með höndum yfirstjórn slíkra aðgerða, sbr. t.d. ákvæði í reglugerð um samvinnu og starfsskiptingu milli lögreglustjóra og rannsóknarlögreglu ríkisins, nr. 253/1977, þar sem mælt er fyrir um í 4. mgr. 2. gr. að rannsóknardeildir einstakra lögregluembætta skuli hafa stjórn á leit að týndu fólki, enda sé leitin ekki þáttur í rannsókn brots, en jafnan skuli Rannsóknarlögreglu ríkisins tilkynnt um slíka leit.
Nefndin telur nauðsynlegt að festa slíkt ákvæði í lög þar sem rannsóknarskylda lögreglu tengist mjög oft leitar- og björgunaraðgerðum og mikilvægt sé að heimildir lögreglustjóra í því efni séu sem gleggstar. Leggur nefndin því til að í 6. gr. frv., um lögregluumdæmi og stjórn þeirra, verði tekið slíkt ákvæði.
Enn fremur þykir rétt að kveða á um að dómsmrh. setji reglur um samstarf lögreglu og björgunarsveita og að við samningu þeirra verði haft samráð við önnur ráðuneyti sem málið varðar og hlutaðeigandi aðila.
2. Við 8. gr. Í umsögnum hefur komið fram talsverð gagnrýni á 8. gr. frv. sem fjallar um sérstakar rannsóknardeildir. Í breytingartillögum allshn. er gert ráð fyrir að fyrirkomulag lögreglurannsókna verði ákvarðað með almennari hætti en í frv. Nefndin telur mikilvægt að kveðið verði á um að lögregla annist rannsóknir brota í samráði við ákærendur. Náið samráð lögreglu og ákæruvalds við lögreglurannsóknir er í fyllsta samræmi við þau meginmarkmið sem í frv. þessu og frv. til breytinga á lögum um meðferð opinberra mála, sem lagt var fram samhliða, er ætlað að ná fram.
Með 2. mgr. er lagt til að lögfest verði sú grundvallarregla að rannsókn skuli að jafnaði hefja í því umdæmi þar sem brotið er framið. Þá leggur nefndin til að dómsmrh. setji nánari reglur um í hvaða umdæmi brot skuli rannsakað, hvernig stjórn rannsóknar skuli háttað og um verkaskiptingu einstakra lögreglustjóra og rannsóknardeilda ríkislögreglustjóraembættisins. Óheppilegt þykir að slík verkaskipting sé fastákveðin í lögum þar sem ákveðinn sveigjanleiki þarf að vera til staðar til að hægt sé að bregðast við breytilegum aðstæðum.
3. Við 9. gr. Tekið er af skarið um að slíkt framsal lögregluvalds, sem málsgreinin mælir fyrir um, verði aðeins heimilt þegar um er að ræða sérstök verkefni. Þá er lagt til að auk tollvarða fari ríkistollstjóri, tollstjórar og löglærðir fulltrúar þeirra með lögregluvald á sínu starfssviði þegar þeir annast eða aðstoða við löggæslu.
4. Við 10. gr. Lögð er til leiðrétting á tilvísun.
5. Við 18. gr. Skerpt er á ákvæðunum þannig að lögreglu beri skilyrðislaust að hafa afskipti af börnum undir 16 ára aldri sem eru á stöðum þar sem heilsu þeirra og velferð er alvarleg hætta búin.
6. Við 20. gr. Lagt er til samræmt orðalag.
7. Við 22. gr. Lagt er til að orðalagi ákvæðisins verði breytt. Allshn. leggur áherslu á að í athugasemdum við þetta ákvæði frv. segir að ákvæðinu sé ekki ætlað að þrengja að stjórnarskrárvernduðu tjáningarfrelsi lögreglumanna eða koma í veg fyrir gagnrýni á yfirstjórn lögreglu. Breytingartillagan miðar að því að taka af allan vafa um þetta.
8. Við 28. gr. Lagt er til að sá sem ráðinn er tímabundið í lögreglustarf skuli fullnægja öllum skilyrðum fyrir inngöngu í Lögregluskólann. Nefndin lítur svo á að ekki verði hægt að ráða menn til starfa samkvæmt 4. mgr. lengur en til eins árs og að æskilegt sé að þeir séu ráðnir er hafa lokið námskeiði í Lögregluskóla ríkisins fyrir afleysingamenn í lögreglunni.
9. Við 32. gr. Lagt er til að ákvæðinu verði breytt þannig að bann við aukastörfum lögreglumanna verði ekki eins fortakslaust.
10. Við 35. gr. Í umsögn Landssambands lögreglumanna og einstakra lögreglufélaga um þetta ákvæði var gerð athugasemd við að ríkislögreglustjóra væri ætlað að rannsaka mál vegna meintra refsiverðra brota lögreglumanna í starfi. Nefndin leggur því til að ríkissaksóknari stýri rannsókn slíkra mála.
11. Við 37. gr. Lagt er til að skólastjóri Lögregluskóla ríkisins verði skipaður með sama hætti og lögreglustjórar.
12. Við 38. gr. Í fyrsta lagi er lagt til að skilyrði a-liðar verði rýmkað þannig að einungis sé um hindrun að ræða ef umsækjandi hefur hlotið dóm fyrir refsiverðan verknað. Þar er einnig lagt til að heimild til að setja í reglugerð skilyrði um lágmarkshæð lögreglumannsefna verði felld brott. Nefndin telur að slíkt skilyrði geti brotið gegn jafnræði umsækjenda. Þá er lagt til að fellt verði brott það skilyrði fyrir inngöngu í Lögregluskóla ríkisins að lögreglumannsefni hafi lokið grunnskólaprófi, enda slíkt próf ekki fortakslaust skilyrði fyrir inngöngu í framhaldsskóla.
13. Við 43. gr. Lögð er til samræming á orðalagi.
14. Lagt er til að við frv. bætist nýr kafli með ákvæði til bráðabirgða er varðar aðgerðir vegna niðurlagningar Rannsóknarlögreglu ríkisins. Ákvæðinu er ætlað að tryggja að starfsmenn Rannsóknarlögreglu ríkisins glati ekki áunnum réttindum sínum við tilfærslu í starfi þegar lögin koma til framkvæmda. Með stofnun samráðsnefndar er starfsmönnum ætlað að hafa áhrif á hvernig staðið verði að auglýsingu og skipun í ný störf við embætti ríkislögreglustjóra, lögreglustjórans í Reykjavík og önnur embætti. Tryggja þarf að framkvæmd laganna valdi sem minnstri röskun á rannsóknastarfsemi og stöðu og högum starfsmanna.
Kríurnar, sem er félag kvenlögregluþjóna sem komu á fund allshn., lögðu áherslu á að a.m.k. ein kona ætti sæti í valnefndinni sem velur nema í Lögregluskólann úr hópi umsækjenda. Sú ábending kom fram að eðlilegt væri að tilnefningaraðilar tilnefndu einn karl og eina konu hver og ráðherra tryggði við skipun nefndarinnar að a.m.k. ein kona ætti þar fast sæti hverju sinni. Nefndin tekur undir þessi sjónarmið þeirra.
Þá leggur nefndin til að farið verði rækilega yfir þær forsendur sem fram koma í athugasemdum með frv. og lagðar hafa verið til grundvallar flutningi starfsmanna og fjárheimilda til embætta ríkislögreglustjóra og lögreglustjórans í Reykjavík þannig að tryggt sé að hægt verði að sinna á fullnægjandi hátt rannsóknum þeirra mála sem flytjast munu til embættis lögreglustjórans í Reykjavík. Loks vill nefndin að gefnu tilefni benda á mikilvægi þess að samræmingarhlutverk ríkislögreglustjóra taki til allra brotaflokka, þar með talið rannsóknar ávana- og fíkniefnabrota.
Jóhanna Sigurðardóttir sat fundi allshn. sem áheyrnarfulltrúi og er samþykk þessu áliti. Allir nefndarmenn allshn. skrifa undir nefndarálitið en Ögmundur Jónasson er þó með fyrirvara.
Virðulegi forseti. Hér er um mjög mikilvægt mál að ræða sem hefur verið unnið ítarlega í allshn. og fjallað um á mörgum fundum. Því er það von okkar að frv. verði vel tekið á hinu háa Alþingi.