Stofnun hlutafélags um rekstur Póst- og símamálastofnunar

Miðvikudaginn 29. maí 1996, kl. 13:32:18 (6742)

1996-05-29 13:32:18# 120. lþ. 151.15 fundur 331. mál: #A stofnun hlutafélags um rekstur Póst- og símamálastofnunar# frv. 103/1996, 364. mál: #A póstlög# (Póstur og sími hf.) frv. 107/1996, 408. mál: #A fjarskipti# (meðferð einkaréttar ríkisins) frv. 99/1996, ÖJ
[prenta uppsett í dálka] 151. fundur

[13:32]

Ögmundur Jónasson:

Hæstv. forseti. Hér eru til umræðu frumvörp um að breyta Pósti og síma í hlutafélag og hér eru hvorki hæstv. samgrh. né talsmaður samgn. viðstaddir. Ég óska því eftir því að gera hlé á ræðu minni eða hefja hana ekki fyrr en þeir eru komnir í þingsal.