Frsm. landbn. (Egill Jónsson) (andsvar):
Virðulegi forseti. Að því er varðar eftirlitsþáttinn er þetta býsna gömul umræða. Frá mínum bæjardyrum séð er hún úrelt vegna þess að við búum orðið við þá fjarskiptatækni sem gerir það mögulegt að líta eftir landinu okkar með mjög skilvirkum hætti og þá á ég sérstaklega við myndkortagerðina sem er unnin af einni stofnun umhvrn. Þannig held ég að þetta geti gengið vel fram. Við sækjum þá tækni og þá þjónustu þar sem hún er fyrir hendi, í þessu tilviki til Landmælinga Íslands sem ég er nokkuð vel kunnugur. Þar hefur verið unnið mikið brautryðjendastarf einmitt í sambandi við myndkortagerð sem hefur vakið mikla athygli, ekki bara hér á landi heldur líka erlendis. Það er með þeirri tækni og þeim búnaði sem við lítum eftir landinu okkar og þá mun gamla þrasið í þessum efnum á milli manna og stofnana hverfa.