Pétur H. Blöndal (andsvar):
Herra forseti. Tökum sem dæmi mann sem á mikla innstæðu í banka og fær mikla vexti og á að fara borga núna fjármagnstekjuskatt og annan mann sem á jafnstóra upphæð í hlutabréfum og fær jafnstóra upphæð í arð. Ég skil ekki hvernig hægt er að segja að verið sé að hygla þeim síðarnefnda þótt skattlagning á arðinum, sem hefur verið óheyrilega há, sé lækkuð og skattlagningin á vöxtunum jöfnuð.
Ég vil benda á að ég er ekki sáttur við þetta frv. eins og það er. Ég hefði samið það allt öðruvísi. En þetta er niðurstaðan af samstarfi fulltrúa allra flokka á þingi ásamt ASÍ og Vinnuveitendasambandinu. Hún er flutt hérna og þeirri nefnd var ekki ætlað að fjalla um eignarskatt og annað því tengt. Reyndar stendur í greinargerð meiri hlutans að það eigi að stefna að því að nota tekjur af þessum skatti til að lækka eignarskatta. Það verður vonandi gert og ég mun berjast fyrir því. Og þegar það er komið í gegn er þetta orðið mjög gott frv. Ég held að það verði að jafna aðstöðuna á milli þessara eignarforma og ríkið má ekki stýra peningum frá atvinnulífinu til ríkissjóðs eða bankanna þannig að atvinnulífið fái ekkert eigið fé. Það fær bara lánsfé.