Forseti (Ólafur G. Einarsson):
Samkomulag er um að hver þingflokkur fái 20 mínútur til umráða sem skiptast í þrjár umferðir, átta mínútur í fyrstu umferð og sex mínútur í tveimur síðari umferðunum.
Röð flokkanna verður þessi í öllum umferðum: Alþfl., Framsfl., Þjóðvaki, Alþb. og óháðir, Sjálfstfl. og Samtök um kvennalista.
Ræðumenn flokkanna verða: Fyrir Alþfl. talar Gísli S. Einarsson, 5. þm. Vesturl., í fyrstu umferð, Lúðvík Bergvinsson, 6. þm. Suðurl., í annarri og Sighvatur Björgvinsson, 4. þm. Vestf., í þriðju umferð. Ræðumenn Framsfl. verða: Halldór Ásgrímsson utanrrh. í fyrstu umferð, í annarri Ólafur Örn Haraldsson, 11. þm. Reykv., og í þriðju umferð Páll Pétursson félmrh. Ræðumenn Þjóðvaka verða: Jóhanna Sigurðardóttir, 13. þm. Reykv., í fyrstu umferð, í annarri Svanfríður Jónasdóttir, 6. þm. Norðurl. e., og Ágúst Einarsson, 11. þm. Reykn., í þriðju umferð. Ræðumenn Alþb. og óháðra verða í fyrstu umferð Margrét Frímannsdóttir, 5. þm. Suðurl., í annarri Ögmundur Jónasson, 17. þm. Reykv., og í þriðju umferð Hjörleifur Guttormsson, 4. þm. Austurl. Fyrir Sjálfstfl. talar í fyrstu umferð Friðrik Sophusson fjmrh., í annarri Árni Johnsen, 3. þm. Suðurl., og í þeirri þriðju Einar K. Guðfinnsson, 1. þm. Vestf. Fyrir Samtök um kvennalista talar Kristín Halldórsdóttir, 12. þm. Reykn., í fyrstu umferð, í annarri umferð Kristín Ástgeirsdóttir, 14. þm. Reykv., og Guðný Guðbjörnsdóttir, 19. þm. Reykv., í þriðju umferð.
Hefst nú umræðan.