Tekjuskattur og eignarskattur

Föstudaginn 31. maí 1996, kl. 16:02:52 (6919)

1996-05-31 16:02:52# 120. lþ. 157.2 fundur 421. mál: #A tekjuskattur og eignarskattur# (fjármagnstekjur) frv. 97/1996, PHB (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 157. fundur

[16:02]

Pétur H. Blöndal:

Herra forseti. Frv. þetta er málamiðlun nefndar sem ég starfaði í. Það er flutt nánast óbreytt. Ég sem og aðrir nefndarmenn, þar á meðal fulltrúar allra þingflokka, ASÍ og Vinnuveitendasambandsins skrifuðu undir frv. án fyrirvara. Ég mun því að sjálfsögðu standa við undirskrift mína og styðja frv. þótt ég sé ekki að öllu leyti sáttur við það. Ég segi nei við því að vísa frv. til ríkisstjórnarinnar.