Gjald af áfengi

Föstudaginn 31. maí 1996, kl. 21:39:48 (6968)

1996-05-31 21:39:48# 120. lþ. 157.8 fundur 269. mál: #A gjald af áfengi# (forvarnasjóður) frv. 85/1996, Frsm. VE (flutningsræða)
[prenta uppsett í dálka] 157. fundur

[21:39]

Frsm. efh.- og viðskn. (Vilhjálmur Egilsson):

Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir nál. frá efh.- og viðskn. um frv. til laga um breytingu á lögum um gjald af áfengi, 269. mál. Nefndin hefur fjallað um málið og leggur til að það verði samþykkt óbreytt.

Málið snýst um það að þann sjóð, sem settur var á fót sl. vor til að vinna að forvörnum í áfengismálum, megi einnig nota til að vinna að forvörnum í fíkniefnamálum.