Sigríður Jóhannesdóttir:
Virðulegi forseti. Það er sannarlega gleðiefni, hæstv. heilbrrh., að þessi uppsafnaði halli hjá Sjúkrahúsi Suðurnesja skuli verða greiddur nú á árinu. Ég veit að margir gleðjast við að heyra þau tíðindi.
Fyrir nokkrum árum voru 60% sjúklinga, sem þurftu á sjúkrahúsvist að halda hjá Sjúkrahúsi Suðurnesja, læknaðir þar. Nú er þetta komið niður fyrir 40%. Þetta er vegna þess að það hafa verið miklar lokanir og þrengingar á þessu sjúkrahúsi þrátt fyrir að það liggi fyrir skjalfest núna af sérstökum tilsjónarmanni sem var sendur á sjúkrahúsið að sjúkrahúsið er afar hagkvæm eining og það er mjög lágur kostnaður á legudag miðað við önnur sjúkrahús. Það hlýtur að þýða að það er mjög dýrt að þurfa að vísa sjúklingum þaðan inn á miklu dýrari sjúkrahús vegna sumarlokana.