Ásta R. Jóhannesdóttir:
Það kom fram hjá hæstv. ráðherra, herra forseti, að það eru bankastjórarnir sem bera ábyrgðina. Verða þeir látnir sæta ábyrgð? Ég spyr hæstv. ráðherra um það. Það er greinilegt á svörum ráðherrans hér að það er ýmislegt óupplýst í þessu máli, upplýsingar sem almenningur á rétt á að fá. Það er greinilega engum blöðum um það að fletta, hæstv. ráðherra.