Eiginfjárstaða Landsbankans og tap Lindar hf.

Mánudaginn 03. júní 1996, kl. 14:12:39 (7013)

1996-06-03 14:12:39# 120. lþ. 158.8 fundur 336#B eiginfjárstaða Landsbankans og tap Lindar hf.# (óundirbúin fsp.), viðskrh.
[prenta uppsett í dálka] 158. fundur

[14:12]

Viðskiptaráðherra (Finnur Ingólfsson):

Herra forseti. Áður en mönnum eru gerð upp mistök í starfi eða á þá lögð ákveðin ábyrgð þá held ég að það sé rétt að fá það upplýst hver sú ábyrgð er sem þeir menn eiga að sæta ef ástæða er til. Þess vegna er fáránlegt að reyna eins og hv. þm. að útbúa sök eða koma sök jafnvel á saklausa menn.