Jóhanna Sigurðardóttir:
Virðulegi forseti. Með frv. þessu er ekki verið að aðstoða íbúðareigendur eins og Framsfl. lagði til fyrir kosningar heldur er verið að lækka endurgreiðslu á virðisaukaskatti til byggjenda íbúðarhúsnæðis og þar með hækka skatta á fólk sem er að koma sér þaki yfir höfuðið. Skattahækkanir á heimilin í landinu er því staðreynd á þessu fyrsta starfsári ríkisstjórnarinnar.