Stefnumótun í íþróttum stúlkna og kvenna

Mánudaginn 03. júní 1996, kl. 21:24:14 (7081)

1996-06-03 21:24:14# 120. lþ. 158.26 fundur 61. mál: #A stefnumótun í íþróttum stúlkna og kvenna# þál. 16/1996, HG (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 158. fundur

[21:24]

Hjörleifur Guttormsson (andsvar):

Virðulegur forseti. Hér er sjálfsagt ágætt mál á ferðinni og ég ætla ekki að gera athugasemdir við þessa tillögu eða afgreiðslu á henni sem slíkri en þegar ég hlýði á framsögu fyrir málinu þar sem talað er um íþróttir stúlkna og kvenna spyr maður: Hvar eru mörkin á milli stúlkna og kvenna? Er þörf á þessari aðgreiningu eins og hún er sett fram? Ég bið framsögumann nefndarinnar um að skýra fyrir þingheimi hvar þessi mörk liggja.