Rannsókn á launa- og starfskjörum landsmanna

Mánudaginn 03. júní 1996, kl. 22:54:39 (7117)

1996-06-03 22:54:39# 120. lþ. 158.32 fundur 109. mál: #A rannsókn á launa- og starfskjörum landsmanna# þál., SvG
[prenta uppsett í dálka] 158. fundur

[22:54]

Svavar Gestsson:

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. félmn. fyrir að gera tillögu um að málið verði afgreitt. Það er mikilsvert að fá botn í málið og ég þakka nefndinni og formanni hennar fyrir skörulega afgreiðslu á málinu.