Stofnun hlutafélags um rekstur Póst- og símamálastofnunar

Mánudaginn 03. júní 1996, kl. 23:13:44 (7125)

1996-06-03 23:13:44# 120. lþ. 158.9 fundur 331. mál: #A stofnun hlutafélags um rekstur Póst- og símamálastofnunar# frv. 103/1996, ÁRJ (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 158. fundur

[23:13]

Ásta R. Jóhannesdóttir:

Herra forseti. Þetta mál er illa unnið og fjölmörgum spurningum er ósvarað. Sérstaklega gagnrýni ég mál starfsmannanna sem á að vinna í sumar. Ég tel rétt að sú vinna fari fram áður en þetta mál verður afgreitt frá þinginu, menn leggist yfir það og vinni verkið almennilega fyrir haustið. Ég styð því að málinu verði vísað til ríkisstjórnarinnar og segi já.