Guðmundur Árni Stefánsson:
Virðulegi forseti. Vegna orða hv. þm. Geirs Haardes um meint samkomulag fulltrúa þingflokkanna á fundi í gærkvöld vil ég taka skýrt fram að það voru einmitt þau áform hæstv. forseta að setja þetta mál á dagskrá sem orsökuðu hrein og klár mótmæli mín. Hins vegar kom fram á þessum sama fundi að ef það væri ákvörðun forseta að gera það, þá væri það honum heimilt því það er stór munur á þeim tveimur málum sem hér um ræðir, þ.e. 12. dagskrármálinu, Náttúruvernd, og því 13., Heilbrigðisþjónustu, nefnilega sá að í 12. málinu er sagt að verið sé að leita samkomulags. Í 13. málinu er ekki verið að því. Það hefur enginn í mín eyru a.m.k., nefnt neitt í þá veru að leitað verði samkomulags um afgreiðslu málsins né heldur efnisatriði þess þannig að á þessum tveimur málum er stór munur. Þess vegna geri ég sérstakar athugasemdir við það að 13. málið skuli vera inni. Hér er ekki um neitt lítið mál að ræða. Hér er um mál að ræða sem lýtur að stjórnskipun heilbrigðisþjónustu þar sem 65% þjóðarinnar búa, þ.e. hvernig yfirstjórn þeirra mála á að vera háttað. Það er rétt að vekja á því athygli sérstaklega að hagsmunaaðilar í þessu sambandi --- Sjúkrahús Suðurnesja til að mynda hefur sent út neyðarkall í þessu tilefni --- hafa haft af því fregnir að hér ætli hið háa Alþingi hugsanlega að keyra málið í gegn án þess að spyrja kóng eða prest, án þess að fara hina venjubundnu leið og leita umsagna. Þess vegna hefur aðalfundur Sjúkrahúss Suðurnesja óskað eftir því sérstaklega við hið háa Alþingi að þessir aðilar fái allra náðarsamlegast að lýsa viðhorfum sínum til málsins.
Ég spyr enn og aftur, virðulegi forseti: Er ætlast til þess og reiknað með því að umsagnarréttur þessara mikilvægu aðila sem eftir þessum lögum eiga væntanlega að starfa, verði fótum troðinn? Er verið að fara þannig fram með málið? Ég hlýt að spyrja og ef svo er, mótmæla því mjög harðlega. Ég neita raunar að trúa því að hæstv. forseti líði slík vinnubrögð ef einhverjum dettur í hug að fara fram á þau.