Frumvarp um heilbrigðisþjónustu

Þriðjudaginn 04. júní 1996, kl. 10:19:05 (7154)

1996-06-04 10:19:05# 120. lþ. 160.93 fundur 340#B frumvarp um heilbrigðisþjónustu# (aths. um störf þingsins), Forseti ÓE
[prenta uppsett í dálka] 160. fundur

[10:19]

Forseti (Ólafur G. Einarsson):

Forseti hefur þegar útskýrt hvað hann hyggst fyrir um þetta mál. Hann mun ræða það á fundi með þingflokksformönnum áður en það kemur til umfjöllunar á þingfundinum. Þess vegna kann forseti ekki við það orðalag að það sé verið að keyra þetta mál í gegn án þess að tala við kóng eða klerk ef ég hef tekið rétt eftir.