Kristín Ástgeirsdóttir:
Hæstv. forseti. Undanfarna daga og vikur og reyndar undanfarna tvo mánuði hefur verið afar mikið vinnuálag í sölum Alþingis og á nefndarfundum. Hér hefur verið afgreitt hvert stórmálið á fætur öðru í miklum ágreiningi. Við stöndum einfaldlega frammi fyrir því hvenær þingstörfum á að ljúka. Menn lögðu á sig mikla vinnu í allan gærdag til að reyna að þoka málum áfram. Þetta mál, sem hæstv. heilbrrh. er svo hjartfólgið, kom mjög seint fram. Það kann vel að vera að heilbr.- og trn. og allir flokkar á Alþingi verði sammála um að afgreiða málið. Staðreyndin er einfaldlega sú að það er afar skammur tími til stefnu. Ég er búin að lesa þetta frv. Ég er með það hér undirstrikað. Þetta er ekkert smámál. Það er ekkert smávald sem á að fela þessu svæðisráði. Það kann vel að vera að það sé eðlilegt. Það kann vel að vera. Ef ég má vitna í frv., með leyfi forseta. Það segir hér:
,,Hlutverk ráðsins er að gera tillögur um mótun framtíðarstefnu áðurnefndra sjúkrahúsa, flokkun þeirra og starfssvið og þróunar- og fjárfestingaráætlanir og stuðla þannig að sem hagkvæmastri verkaskiptingu þeirra, m.a. með auknu samstarfi. Ráðherra getur falið ráðinu framkvæmd einstakra verkefna á sviði öldrunar og endurhæfingar, samninga við starfsfólk og samræmingu starfsmannastefnu.``
(Forseti (GÁS): Forseti vill minna á að hér er ekki í gangi efnisumræða um málið.)
Nei, ég er bara að vekja athygli á því, hæstv. forseti, að þetta er mjög efnismikið mál og að mínum dómi kallar það á nákvæma skoðun. Ég treysti mér ekki til að taka afstöðu til þessa máls án þess að fram fari um það ítarleg umræða og ítarleg skoðun. Það getur vel verið að niðurstaðan verði sú eins og ég sagði hér áðan að við samþykkjum öll þetta frv. En ráðherrann getur ekki farið fram á að mál af þessu tagi sé afgreitt með svo stuttum fyrirvara án þess að það kalli á skoðun. Hvað er það sem ráðherrann er að fara fram á? Það væri kannski ágætt að ráðherrann upplýsti það? Er hann að tala um að koma þessu máli til nefndar? Mundi það duga? En hvað sem því líður þá kallar þetta á mikla umræðu og skoðun.