Jón Kristjánsson:
Herra forseti. Þessar umræður eru nú dálítið heitar og hv. 8. þm. Reykv. segir að forseti ráði dagskránni. Það er að vísu rétt en málið er ekki alveg svo einfalt. Störf forseta miðast auðvitað að því að komast að niðurstöðu um það hverju verður lokið. Ég veit að núverandi forseti hefur ekki unnið í þeim anda að hann bara ráði dagskránni og svo sé málið leyst. Ég vildi eindregið hvetja til þess að það verði sest niður enn einu sinni og farið yfir þetta mál og rætt hvort það megi fá einhvers konar afgreiðslu, hvort sem það verður afgreitt endanlega frá þinginu eða ekki. Ég legg engan dóm á slíkt. En ég hefði hvatt hv. þm. til að lægja svolítið öldurnar og setjast yfir málið og tala saman. (SvG: Hvernig væri að þingmaðurinn talaði við ráðherra sinn?)