Umræður um dagskrármál

Þriðjudaginn 04. júní 1996, kl. 20:33:03 (7248)

1996-06-04 20:33:03# 120. lþ. 160.98 fundur 355#B umræður um dagskrármál# (um fundarstjórn), MF
[prenta uppsett í dálka] 160. fundur

[20:33]

Margrét Frímannsdóttir (um fundarstjórn):

Virðulegi forseti. Ég vil aðeins vekja athygli á því af því hér er verið að fresta áframhaldandi umræðu um 13. mál á dagskrá sem var töluvert til umræðu fyrr í dag, á þeim nótum að stjórnarandstaðan tefði fyrir málinu þá vil ég aðeins vekja athygli á því að í þetta sinn er það ekki þingflokksformaður Alþb. eða aðrir stjórnarandstæðingar sem stöðva áframhaldandi umræðu um málið hér á þingi.