Forsætisráðherra (Davíð Oddsson):
Herra forseti. Ég mæli fyrir tillögu til þál. um samþykki til frestunar á fundum Alþingis skv. 1. mgr. 23. gr. stjórnarskrárinnar. Hún hljóðar svo: ,,Alþingi ályktar að veita samþykki til þess að fundum þingsins verði frestað frá 5. júní 1996 eða síðar, ef nauðsyn krefur, til septemberloka.``
Tillagan skýrir sig sjálf.