Ásta B. Þorsteinsdóttir fyrir JBH

Þriðjudaginn 03. október 1995, kl. 13:30:08 (7)

1995-10-03 13:30:08# 120. lþ. 1.91 fundur 21#B Varamaður tekur þingsæti#, Forseti ÓE
[prenta uppsett í dálka]

Forseti (Ólafur G. Einarsson):

Borist hefur eftirfarandi bréf, dags. 28. sept. 1995:

,,Þar sem ég er á förum til útlanda og get því ekki sótt þingfundi næstu tvær vikur leyfi ég mér með vísun til 2. mgr. 53. gr. laga um þingsköp Alþingis að óska þess að 1. varaþm. Alþfl. í Reykjavíkurkjördæmi, Ásta B. Þorsteinsdóttir hjúkrunarfræðingur, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.

Þetta er yður hér með tilkynnt, virðulegi forseti.

Jón Baldvin Hannibalsson, 9. þm. Reykv.``

Kjörbréf Ástu B. Þorsteinsdóttur hefur verið rannsakað og samþykkt. Hún hefur eigi áður tekið sæti á Alþingi og ber því að undirrita drengskaparheit að stjórnarskránni.