Arnþrúður Karlsdóttir fyrir FI

Fimmtudaginn 05. október 1995, kl. 10:31:25 (34)

1995-10-05 10:31:25# 120. lþ. 3.91 fundur 22#B Varamaður tekur þingsæti#, Forseti ÓE
[prenta uppsett í dálka]

Forseti (Ólafur G. Einarsson):

Borist hefur eftirfarandi bréf, dags. 5. október:

,,Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sótt þingfundi næstu tvær vikur leyfi ég mér með vísun til 2. mgr. 53. gr. laga um þingsköp Alþingis að óska þess að 1. varamaður Framsfl. í Reykjavíkurkjördæmi, Arnþrúður Karlsdóttir fréttamaður, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.

Þetta er yður hér með tilkynnt, virðulegi forseti.

Finnur Ingólfsson,

7. þm. Reykv., iðn.- og viðskrh.``

Kjörbréf Arnþrúðar Karlsdóttur hefur þegar verið rannsakað og samþykkt. Hún hefur hins vegar ekki áður tekið sæti á Alþingi og ber því nú samkvæmt 2. gr. þingskapa að undirrita drengskaparheit að stjórnarskránni.