Fjárlög 1996

Föstudaginn 06. október 1995, kl. 16:44:52 (104)

1995-10-06 16:44:52# 120. lþ. 4.2 fundur 1. mál: #A fjárlög 1996# frv., félmrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka]

Félagsmálaráðherra (Páll Pétursson) (andsvar):

Herra forseti. Út af Framkvæmdasjóði fatlaðra er það að segja að þetta er nú nákvæmlega ekki eins og það stendur í fjárlögunum vegna þess að söluandvirði Sólborgarhúsanna á Akureyri gengur til Framkvæmdasjóðsins þannig að þar eru milli 80 og 90 millj. til viðbótar.