Bryndís Hlöðversdóttir (andsvar):
Virðulegi forseti. Hv. þm. Siv Friðleifsdóttir vitnaði hér áðan í ónafngreindan ráðherra Alþýðubandalagsins því máli sínu til stuðnings að vinnubrögð hv. þm. Rannveigar Guðmundsdóttur væru óeðlileg í þessu máli. Mér þykir það öllu óeðlilegra að vitna hér í ónafngreinda þingmenn máli sínu til stuðnings og ég held að það séu ekki mörg fordæmi fyrir slíkum málflutningi hér í þingsölum.