Opinber fjölskyldustefna

Fimmtudaginn 12. október 1995, kl. 11:32:33 (230)

1995-10-12 11:32:33# 120. lþ. 9.1 fundur 16. mál: #A opinber fjölskyldustefna# þál., ÁRJ (andsvar)
[prenta uppsett í dálka]

Ásta R. Jóhannesdóttir (andsvar):

Herra forseti. Ég trúi varla mínum eigin eyrum hér í þingsölum. Að maður skuli þurfa að hlusta á slík hnútuköst og dylgjur. Ég fæ ekki séð að þessi umræða komi að nokkru gagni fyrir fjölskyldurnar í landinu. Og ég er undrandi á slíkum málflutningi. Það hefur komið í ljós að þetta mál er þrautunnið. Hver svo sem vann það, þá er þetta vel unnið þingmál. Hæstv. félmrh. ætti auðvitað að fagna því og koma málinu í framkvæmd, honum væri sómi að því.