Opinber fjölskyldustefna

Fimmtudaginn 12. október 1995, kl. 14:15:17 (260)

1995-10-12 14:15:17# 120. lþ. 9.1 fundur 16. mál: #A opinber fjölskyldustefna# þál., ÁÞ (andsvar)
[prenta uppsett í dálka]

Ásta B. Þorsteinsdóttir (andsvar):

Virðulegi forseti. Þetta skal vera stutt. Ég hef aldrei talið það vera mitt umboð að slíta samningaviðræðum og hef ekki gert neitt í þá áttina. Þar hefur ríkisstjórnin verið einfær um að hleypa málum í uppnám. Ég er að lýsa staðreyndum og ég vona að hæstv. félmrh. sýni þann manndóm að játa að þessi orð hafa fallið og þau eru ekki fleipur.