Sýslumannsembættin í Bolungarvík og Ólafsfirði

Mánudaginn 16. október 1995, kl. 15:03:16 (276)

1995-10-16 15:03:16# 120. lþ. 10.1 fundur 33#B sýslumannsembættin í Bolungarvík og Ólafsfirði# (óundirbúin fsp.), GE
[prenta uppsett í dálka]

Gísli S. Einarsson:

Herra forseti. Ég ber fram fyrirspurn til hæstv. dómsmrh. vegna vinnu við fjárlagagerð sem ég tel mig þurfa að fá upplýsingar um frá honum. Samkvæmt fjárlagafrv. 1996 ætlar hæstv. ráðherra að leggja niður sýslumannsembættin í Bolungarvík og í Ólafsfirði. Það var einnig ætlan á fjárlagaárinu 1994 að leggja niður nokkur embætti og það fórst fyrir.

Ætlar hæstv. ráðherra að standa við þær tillögur sem gert er ráð fyrir varðandi þessi embætti núna fyrir árið 1996 eða eru áætlanir ráðuneytis hans og e.t.v. kannski fleiri ráðuneyta í fjárlagafrv. ekki marktækar?