Verkfall leikara hjá Ríkisútvarpinu

Mánudaginn 16. október 1995, kl. 15:20:23 (288)

1995-10-16 15:20:23# 120. lþ. 10.1 fundur 36#B verkfall leikara hjá Ríkisútvarpinu# (óundirbúin fsp.), menntmrh.
[prenta uppsett í dálka]

Menntamálaráðherra (Björn Bjarnason):

Herra forseti. Ég get verið stuttorður í svari mínu við þessari spurningu. Ég hef ekki kynnt mér inntak þessarar deilu. Málið hefur ekki komið á mitt borð. Ég lít þannig á að þetta sé málefni sem Ríkisútvarpið eigi að leysa sjálft og sé innanhúsmál þar. Það hefur ekki verið sent erindi um það til mín og ég hef ekki í hyggju að skipta mér af málinu.