Þingfararkaup og þingfararkostnaður

Mánudaginn 16. október 1995, kl. 15:53:15 (306)

1995-10-16 15:53:15# 120. lþ. 12.1 fundur 84. mál: #A þingfararkaup og þingfararkostnaður# (skattskylda starfskostnaðar) frv., Forseti ÓE
[prenta uppsett í dálka]

Forseti (Ólafur G. Einarsson):

Áður en gengið er til dagskrár vill forseti geta þess að borist hefur bréf frá þingflokki Þjóðvaka þar sem óskað er eftir að ræðutíminn við 1. umr. frv. um þingfararkaup og þingfararkostnað verði tvöfaldur og verður svo gert.