Hækkun tryggingabóta

Miðvikudaginn 18. október 1995, kl. 14:21:08 (430)

1995-10-18 14:21:08# 120. lþ. 15.4 fundur 24. mál: #A hækkun tryggingabóta# fsp. (til munnl.) frá heilbrrh., heilbrrh.
[prenta uppsett í dálka]

Heilbrigðisráðherra (Ingibjörg Pálmadóttir):

Virðulegi forseti. Eins og kom fram í ræðu minni áðan þá var búið að ganga frá þessu í fyrri ríkisstjórn. Það var farið að greiða eftir þessum samningum og ég endurtek það að það var í fullu samræmi við það sem fulltrúar ASÍ höfðu samþykkt. (SvG: Liggur það fyrir?) Þetta hlýtur að liggja skjalfest fyrir og ég skal finna þau skjöl fyrir hv. þm.