[16:05]
Forseti (Ragnar Arnalds):
Borist hafa fjögur bréf um innköllun varamanna. Hið fyrsta er dags. 27. okt. 1995 og er svohljóðandi:
,,Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér með vísun til 2. mgr. 53. gr. laga um þingsköp Alþingis að óska þess að 1. varaþm. Alþb. í Reykjavíkurkjördæmi, Guðrún Helgadóttir, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.
Þetta er yður hér með tilkynnt, herra forseti.
Svavar Gestsson, 8. þm. Reykv.``
Guðrún Helgadóttir hefur áður tekið sæti á Alþingi á þessu kjörtímabili og er boðin velkomin til starfa.
Þá er bréf frá hv. þm. Svanfríði Jónasdóttur, dags. 28. október sl., svohljóðandi:
,,Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sótt þingfundi á næstu tveimur vikum leyfi ég mér með vísun til 2. mgr. 53. gr. laga um þingsköp Alþingis að óska þess að 1. varaþingmaður Þjóðvaka í Norðurl. e., Vilhjálmur Ingi Árnason, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.
Þetta er yður hér með tilkynnt, herra forseti.``
Kjörbréf Vilhjálms Inga Árnasonar hefur þegar verið samþykkt.
Því næst er bréf frá hv. þm. Magnúsi Stefánssyni, dags. 27. október 1995, svohjóðandi:
,,Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sótt þingfundi á næstu tveimur vikum leyfi ég mér með vísun til 2. mgr. 53. gr. laga um þingsköp Alþingis að óska þess að 1. varaþm. Framsfl. í Vesturl., Þorvaldur T. Jónsson bóndi, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.
Þetta er yður hér með tilkynnt, herra forseti.``
Kjörbréf Þorvalds T. Jónssonar hefur þegar verið samþykkt.
Loks er bréf frá formanni þingflokks sjálfstæðismanna, Geir H. Haarde, dags. í dag, svohljóðandi:
,,Þar sem Árni R. Árnason, 6. þm. Sjálfstfl. í Reykn., getur ekki sótt þingfundi á næstunni vegna veikinda, leyfi ég mér með vísun til 2. mgr. 53. gr. laga um þingsköp Alþingis að óska þess að 1. varaþm. Sjálfstfl. í Reykn., Viktor B. Kjartansson tölvunarfræðingur, taki sæti á Alþingi í fjarveru hans.
Þetta er yður hér með tilkynnt, virðulegi forseti.``
Kjörbréf Viktors B. Kjartanssonar hefur þegar verið samþykkt.
Þar sem Vilhjálmur Ingi Árnason, Þorvaldur T. Jónsson og Viktor B. Kjartansson hafa ekki áður tekið sæti á Alþingi ber þeim nú að undirrita drengskaparheit að stjórnarskránni.