[16:13]
Ögmundur Jónasson:
Hæstv. forseti. Ég vil gera grein fyrir því hvers vegna ég skrifa undir nefndarálitið með fyrirvara og byrja á því að lýsa mjög eindreginni andstöðu við þær breytingar sem lyfjalögin hafa í för með sér. Ég tel að verið sé að stíga mikið óheillaspor með þessari lagasetningu og get m.a. af þeim sökum ekki skrifað undir nefndarálitið án fyrirvara. Ég hef talið og tel enn að lögin eigi að endurskoða í heild sinni og taka þau upp með rótum.
Ég hef hins vegar sannfærst um að ríkisstjórnarflokkarnir eru staðráðnir í því að hverfa ekki frá þeirri stefnu sem mörkuð er með lyfjalögunum og mun ég ekki leggjast gegn því að frestur á framkvæmd á tilteknum hlutum laganna verði styttur. Ég legg áherslu á að skilyrðin verði eftir sem áður að allar reglugerðir liggi fyrir fullmótaðar og hafi verið kynntar í heilbr.- og trn. áður en sú dagsetning rennur upp sem lögin eiga að taka gildi. Ég mun því ekki leggjast gegn samþykkt þessara laga en sitja hjá við atkvæðagreiðsluna.