Lyfjalög

Mánudaginn 30. október 1995, kl. 16:36:40 (517)

1995-10-30 16:36:40# 120. lþ. 19.1 fundur 21. mál: #A lyfjalög# (gildistaka ákvæða um stofnun lyfjabúða o.fl.) frv., ÁMM (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 19. fundur


[16:36]

Árni M. Mathiesen (andsvar):

Herra forseti. Á ræðu hv. síðasta ræðumanns get ég ekki annað heyrt en að við séum fullkomlega sammála um öll efnisatriði. Ég hlýt því að draga þá ályktun að við séum báðir leystir frá prófinu um að þetta mál sé einhver prófsetinn á stuðning okkar við frjálsa verslun.