Mannanöfn

Þriðjudaginn 31. október 1995, kl. 13:37:49 (529)

1995-10-31 13:37:49# 120. lþ. 22.2 fundur 73. mál: #A mannanöfn# (heildarlög) frv., dómsmrh.
[prenta uppsett í dálka] 22. fundur


[13:37]

Dómsmálaráðherra (Þorsteinn Pálsson):

Herra forseti. Frv. það til nýrra mannanafnalaga sem ég mæli fyrir er á þskj. 73 og er samið af nefnd sem ég skipaði í ágústmánuði 1993. Í nefndinni áttu sæti Drífa Pálsdóttir, skrifstofustjóri í dómsmrn., sem var formaður nefndarinnar, Halldór Ármann Sigurðsson, prófessor í málvísindum við Háskóla Íslands, og Hjálmar Jónsson, þáv. prófastur en núv. alþingismaður.

Ég mælti fyrir þessu frv. í febrúarmánuði sl. en það var ekki afgreitt á því þingi og því er það nú lagt fram á nýjan leik.

Við samningu frv. var tekið mið af lögum um mannanöfn, nr. 37/1991, en jafnframt litið til eldri laga um mannanöfn frá 1913 og 1925 og frv. til laga um mannanöfn sem lögð voru fram á 75. löggjafarþingi og 92. löggjafarþingi. Enn fremur kynntu nefndarmenn sér sögu íslenskrar nafnalöggjafar að öðru leyti og athuguðu nafnalöggjöf annars staðar á Norðurlöndum eftir því sem ástæða reyndist til. Einkum var þó stuðst við reynslu sem fengist hefur af framkvæmd laga nr. 37/1991 og tekið tillit til þeirrar gagnrýni á lögin sem fram hefur komið.

Margt í lögunum frá 1991 um mannanöfn var til verulegra bóta. Reynslan hefur þó leitt í ljós ýmsa vankanta sem nauðsynlegt er að lagfæra. Einkum hafa ákvæði þeirra um eiginnöfn reynst ósveigjanleg og ekki í samræmi við ríkjandi hugmyndir um persónufrelsi. Í lögunum er t.d. ekki gert ráð fyrir svokölluðum millinöfnum, þ.e. nöfnum sem eru kynlaus í þeim skilningi að þau eru gefin báðum kynjum eins og t.d. nöfn sem dregin eru af örnefnum og enda á dal eða fjörð. Sá siður að gefa slík nöfn hafði þó fengið að þróast að mestu afskiptalaust um langa hríð áður en lögin nr. 37/1991 voru sett enda hefur komið í ljós allmikil ásókn almennings í að fá að gefa nöfn af þessu tagi.

Með ákvæðum laganna um uppruna og hefð eiginnafna er enn fremur tekið fyrir það að ný tökunöfn skjóti rótum hér á landi og hefur það ekki gerst áður í sögu íslenskrar tungu.

Að sjálfsögðu er brýnt að unnið sé að varðveislu íslenska mannanafnaforðans og íslenskra nafnasiða en hins vegar er yfirleitt farsælla að vinna að því markmiði með fræðslu og upplýsingu en með beinu lagaboði. Nafn manns er einn mikilvægasti þáttur sjálfsímyndar hans og varðar fyrst og fremst einkahagi hans en síður almannahag. Réttur foreldra til að ráða nafni barns síns hlýtur að vera ríkur en réttur löggjafans til afskipta af nafngjöfum að sama skapi takmarkaður. Sumir nafnasiðir eru þó þess eðlis að þeir snerta ekki síður veigamikla hagsmuni samfélagsins en einkahagi manna og er réttur löggjafans til afskipta af þeim þá meiri en ella. Þetta á ekki síst við um íslenska kenninafnasiði eins og gerð er rækileg grein fyrir í athugasemdum með frv.

Markmið frv. eru einkum þrjú:

1. Að auka frelsi í nafngiftum frá því sem nú er, einkum með því að heimila aðlöguð erlend nöfn jafnvel þótt þau styðjist ekki við hefðir í íslensku máli og með því að heimila millinöfn.

2. Að jafna nafnrétt manna eftir því sem kostur er m.a. með því að auka rétt erlendra manna sem gerast íslenskir ríkisborgarar.

3. Að stuðla að því að ættarnöfn verði fremur notuð sem millinöfn en sem kenninöfn.

Helstu nýmæli frv. eru þessi:

Lagt er til að heimilt verði að gefa erlend nöfn að því tilskildu að þau geti tekið íslenska eignarfallsendingu. Með þessu móti er frjálsræði í nafngiftum aukið umtalsvert en um leið tryggt að erlend nöfn lagist að íslenskum beygingarreglum, a.m.k. að nokkru leyti. Lagt er til að millinöfn verði leyfð með ákveðnum takmörkunum þó. Hér er um að ræða grundvallarbreytingu því með henni er tekinn upp nýr flokkur nafna sem hefur aðra stöðu í nafnakerfinu en bæði eiginnöfn og kenninöfn. Þessi breyting er óhjákvæmileg ef frv. á að svara kröfum tímans eins og rakið hefur verið og vísa má til frekar í athugasemdum með frv.

Gert er ráð fyrir að þeir sem bera ættarnöfn geti eftirleiðis borið þau sem millinöfn ásamt föður- eða móðurnafni. Ættarnöfn hafa breiðst svo hratt út hér á landi á undanförnum áratugum að íslenska kenninafnasiðnum stendur nokkur ógn af. Breytingunni er ætlað að styrkja þennan ævaforna kenninafnasið Íslendinga. Ekki er þó um neina þvingun að ræða því að þeir sem bera ættarnöfn mega gera það áfram kjósi þeir svo. Þó er gert ráð fyrir að menn taki ekki upp ættarnöfn maka sinna sem kenninöfn eftirleiðis en megi taka þau upp sem millinöfn. Ástæðurnar fyrir þessari breytingu er raktar ítarlega í athugasemdum með frv.

Loks stefnir frv. að því að auka mjög nafnrétt hérlendra manna af erlendum uppruna. Þannig er gert ráð fyrir að þeir sem fá íslenskan ríkisborgararétt með lögum geti haldið nafni sínu alveg óbreyttu kjósi þeir svo og að niðjar þeirra hafi sama nafnrétt og aðrir t.d. til að halda ættarnafni eða nota það sem millinafn.

Nöfn eru ákaflega persónulegt mál og skoðanir manna á því hvaða reglur beri að setja um nafngiftir mjög skiptar sem vonlegt er. Í frv. er leitast við að sætta ólík sjónarmið um þetta efni og stefnt að löggjöf, sem er frjálslynd og svarar kalli tímans, en virðir um leið sérstöðu Íslendinga og rótgrónar nafnhefðir þeirra.

Herra forseti. Með hliðsjón af því að með frv. fylgja ítarlegar athugasemdir þeirrar nefndar sem frv. samdi og nokkrar umræður fóru fram um frv. fyrr á árinu ætla ég að láta nægja að gera grein fyrir þessum höfuðatriðum í frv. á þessu stigi. Það er alveg ljóst að um veigamikið og vandmeðfarið mál er að ræða. Á því kunna menn að hafa ýmsar skoðanir og það er æskilegt og nauðsynlegt að sú nefnd sem fær málið til umfjöllunar fari rækilega yfir það og gefi hv. þm. kost á að koma fram með sjónarmið sín við meðferð málsins í þinginu. En ég legg til að að lokinni umræðunni verði frv. vísað til 2. umr. og hv. allshn.