Mannanöfn

Þriðjudaginn 31. október 1995, kl. 14:21:06 (540)

1995-10-31 14:21:06# 120. lþ. 22.2 fundur 73. mál: #A mannanöfn# (heildarlög) frv., SP
[prenta uppsett í dálka] 22. fundur


[14:21]

Sólveig Pétursdóttir:

Virðulegi forseti. Aðeins stutt athugasemd út af umræðum um þetta frv. sem ég hef hlustað með athygli á. Það er ljóst að skoðanir eru skiptar og því er afar mikilvægt að hv. þm. nái samstöðu um meginstefnu frv. En því var beint til allshn. að hún fjallaði ítarlega um frv. og það verður auðvitað gert.

Því var enn fremur beint til nefndarinnar að fara yfir ræður og athugasemdir þingmanna frá því í vetur og er sjálfsagt að verða við þeirri beiðni.

Virðulegi forseti. Ég vildi bara láta þetta koma fram.