[14:27]
Kristín Ástgeirsdóttir:
Hæstv. forseti. Ég fagna því sérstaklega að þetta frv. skuli fram komið. Þó að það feli ekki í sér fullgildingu á alþjóðasamningi gegn pyndingum þá tengist það þeim samningi og það kemur fram í athugasemdum við frv. að utanrrn. mun leggja fram samninginn til fullgildingar á hinu háa Alþingi og kann að vera að það frv. sé fram komið þó að það hafi farið fram hjá mér.
Ég fagna þessu sérstaklega vegna þess að það skiptir mjög miklu máli að Íslendingar standi sig í því að fullgilda samninga af þessu tagi. Því fleiri ríki sem staðfesta þessa samninga, því meiri stuðningur er það við mannréttindabaráttu í heiminum. Það er nú svo að því fleiri ríki sem játa það og viðurkenna hversu mikilvægt er að taka á t.d. pyndingum , þeim mun meiri stuðningur er það við þá sem eru að berjast gegn slíkum refsingum. Því miður er það svo, hæstv. forseti, að pyndingar eru stundaðar í fjölmörgum ríkjum heims. Ég hygg að nánast öll aðildarríki Sameinuðu þjóðanna komist á skrá Amnesty International, m.a. fyrir pyndingar í fangelsum, en Ísland hefur sem betur fer aldrei komist á slíka skrá þó að hér kunni að hafa orðið tilvik, t.d. í fangelsum, sem kannski jaðra við andlegar pyndingar.
Af þessu tilefni vil ég einmitt brýna það fyrir íslenskum stjórnvöldum að vera nú fljót til að staðfesta samninga af þessu tagi og ýmsa þá alþjóðasamninga sem verið er að gera vegna þess að það skiptir máli í alþjóðasamhengi.
Það kom fram í máli hæstv. dómsmrh. að sú lagabreyting sem hér er á ferð auðveldar að ná til manna sem hugsanlega mundu leita skjóls hér á landi. Ekki veit ég hvort þess eru dæmi að menn sem hafa verið eftirlýstir í öðrum löndum hafi leitað hér hælis. Það var reyndar eitt slíkt mál á ferð fyrir nokkru sem aldrei hefur fengist niðurstaða í enda viðkomandi maður nú látinn, en það er afar brýnt að við séum aðilar að málum eins og þessu, en þó fyrst og fremst það að við staðfestum þá samninga sem verið er að gera á alþjóðavísu og leggjum þar með okkar af mörkum til betri heims.