[15:14]
Sjávarútvegsráðherra (Þorsteinn Pálsson):
Herra forseti. Í tilefni af þessari fyrirspurn hef ég óskað eftir áliti Hafrannsóknastofnunar um það atriði sem hv. fyrirspyrjandi vekur máls á og þar segir eins og fram kom í máli hv. fyrirspyrjanda: Vitneskja er mjög takmörkuð um túnfisk á okkar hafsvæði. Túnfiskur er mjög sjaldséður hér við land þó hann hafi fundist nokkrum sinnum. Á síðasta ári urðu erlend túnfiskskip vör við túnfisk, en þau hafa leitað hafna hér á meðan á úthaldi hefur staðið í Norður-Atlantshafi. Þetta hefur m.a. vakið upp spurningar um hvort túnfisk sé að finna innan íslenskrar lögsögu eða rétt utan hennar. Í ljósi þessa hefur Hafrannsóknastofnun fengið leyfi til að gangast fyrir tilraunaveiðum á næsta ári í samvinnu við erlenda aðila sem sýnt hafa því áhuga. Enn er ekki ljóst hvernig þeim málum lyktar en víst er að Hafrannsóknastofnun hefur hug á að leita allra leiða til að sinna þessu verkefni. Það er enginn vafi á því að þarna kunna að vera möguleikar og því ástæða til að kanna þá til hlítar. Til viðbótar þessu er rétt að taka fram að það er von á fulltrúum frá þeim japönsku útgerðaraðilum sem hér um ræðir til viðræðna um mögulega samvinnu í rannsóknum á næsta ári. En á þessu stigi er ekki unnt að segja fyrir um niðurstöður þeirra athugana.
Þess er líka að geta að sjútvrn. hefur haft til athugunar möguleika á því að við Íslendingar gerðumst aðilar að Túnfiskveiðistofnuninni í Atlantshafi, bæði til þess að eiga þar aðgang að frekari upplýsingum og enn fremur í þeim tilgangi að geta tekið þátt í stjórnunarákvörðunum varðandi túnfiskveiðar á úthafinu hér í Atlantshafinu.
Varðandi vilja af minni hálfu til að verja meiri fjármunum til rannsókna á þessu sviði liggur í augum uppi að hann er fyrir hendi en niðurstaða þess máls ræðst auðvitað af afgreiðslu fjárlaga hverju sinni. Ég veit að hv. fyrirspyrjanda sem stjórnarþingmanni er kunnugt um þær þröngu skorður sem okkur eru settar við fjárlagaafgreiðslu.